Hvað gerist ef neyð ber að garði?
Föstudagur, 23. júlí 2010
Þetta fólk er að berjast fyrir hærri grunnlaunum, laun sem nú eru ekki hærri en 180 þúsund á mánuði. Sem er til háborinnar skammar.
Það er ljóst að þessum mönnum(og konum) er full alvara með þessu verkfalli.
Þetta er graf alvarlegt mál og það verður að finna botn í þessar viðræður.
Hér verður einhver að láta eftir því til lengri tíma getur þetta ekki gengið.
Hvað gerist ef neyð ber að garði?
Það þarf ekki mikið til...
Hefur svona staða einhvern tíman komið upp áður?
Lítill neisti getur kveikt stórt bál.
Neita að bera boðtækin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lánadrottin vs lántaki
Föstudagur, 23. júlí 2010
Það verður fróðlegt að sjá hverjum Héraðsdómur dæmir í vil nú á eftir.
Þessi dómur mun hafa mikil áhrif á allt samfélagið, fordæmisgildi hans er mikið.
Bílalánin eru klyfjar sem eru að keyra marga um koll þessa dagana.
Auðvitað mun lýsing áfrýja, þeir eru jú að berjast fyrir lífi sínu...
Er það ekki næsta víst að ef þetta mál tapast þá munu þýskir lánadrottnar Lýsingar pakka saman og sigla skipinu í þrot?
Öruggt að dómi verði áfrýjað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Íslandsvinurinn Robert
Fimmtudagur, 22. júlí 2010
Það er eitthvað við þessa Tchenguiz bræður sem bara lyktar skringilega. Þessir bræður eru á bak við félagið Euro Investments Overseas Inc sem gerir risakröfu í gamla Kaupþing þrátt fyrir að skulda bankanum hundruð milljarða þegar hann hrundi. Þessir aðilar tóki RISA stöðu á móti krónunni.
Robert Tchenguiz er náinn vinur Philip Green sem er náinn viðskiptafélagi Jóns Ásgeirs. Það er þó ekki eina tenging kvennabósans við Íslands heldur voru hann og Dorrit víst nánir vinir þegar þau djömmuðu saman í den.
Íslandstenging íðilfagra njósnarans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eigum við að afsala okkur drekasvæðinu?
Fimmtudagur, 22. júlí 2010
Afsöluðum við okkur ekki olíu og gasi á Rocall svæðinu á milli Bretlands og Íslands?
Erum við nokkuð að fara bora eftir þessari olíu yfir höfuð?
Fældu stjórnvöld ekki alla fjárfesta frá þar sem markmiðið var að ná inn öllum tekjunum áður en byrjað yrði að dæla?
Er skattastefna stjórnvalda Íslandi í hag?
Hugsa að það sé ekki spurning um hvort þessi auðlind verði nýtt, heldur hver mun nýta hana og hvenær.
Eru ekki Norðmenn komnir á fullt skrið með undirbúa vinnslu á þessu svæði?
Hvað eru Íslensk stjórnvöld að gera í þessum málum?
Gegn olíuborun á Drekasvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Inspiredbyiceland
Fimmtudagur, 22. júlí 2010
Var þetta ekki ein ástæða fyrir því að Inspiredbyiceland markaðsátakið hálf floppaði.
Mikið af skeytum var flokkað sem ruslpóstur þar sem gríðarlegt magn skeyta var sent út á sama tíma.
Svona gerist þegar leikurinn er ekki hugsaður til enda...
Eyjafjallajökull í rusli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skömm af þessu
Fimmtudagur, 22. júlí 2010
Styðjum við bakið á þessu fólki.
Þetta eru grunnhlekkir samfélagsins og þeir eru ekki að fá borgað sem skyldi.
Það er til skammar að sjúkraflutningamenn skuli hafa rúmlega 169 þúsund í grunnlaun á mánuði.
Það er einfaldlega ekki nóg miðað við þá menntun og eðli starfsins.
Slökkviliðsmenn hlaupa inn í brennandi hús og fá 180 þúsund í grunnlaun.
Fær fólk ekki svipað kaup á kassa í matvöruverslunum?
Er hægt að bjóða fólki upp á þetta?
Ég segi nei...
Slökkviliðsmenn í kröfugöngu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Naktir kúrekar
Fimmtudagur, 22. júlí 2010
Væri ekki nær að þau færu að bara vinna saman.
Hugsa að hagur þeirra beggja myndi vænka fyrir vikið.
Naktir kúrekar í hár saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ímyndið ykkur hvernig heimurinn væri
Fimmtudagur, 22. júlí 2010
Ímyndið ykkur hvernig heimurinn væri ef öll dýrin í skóginum væru vinir.
Prófið að ímynda ykkur hinn fullkomna heim.
Held að það sé ágætis pæling til að taka með sér út í daginn...
Norður-Kórea ósátt við heræfingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Baby show me what it's all about
Fimmtudagur, 22. júlí 2010
Robyn kemur fram á Iceland Airwaves | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Standa karlmenn höllum fæti?
Fimmtudagur, 22. júlí 2010
Hvar er jafnréttið núna?
Eru karlmenn nú farnir að standa höllum fæti?
Kreppan bitnar á körlum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)