LMA (Löggan Má Allt)
Fimmtudagur, 3. mars 2011
Íslenska lögreglan hefur verið mjög tæknivædd á síðustu árum, nýjasta tækni til hlerana hefur verið fenginn frá Bandaríkjunum. Þeir vita það sem vilja að lögreglan á Íslandi virðist oft á tíðum ganga eins langt og hún getur, gríðarlega mörg dæmi eru til um að hún haldi sig ekki innan þess regluramma er hún ber að hlýða gagnvart almenning. Hópur innan lögreglunar virðist fara eftir óskrifaðri reglubók sem er kölluð LMA (Löggan Má Allt)
Nú hefur fyrrverandi lögreglustjórinn á Suðurnesjum opinberlega sagt að Ísland sé lögregluríki. Eins kjánalega og það hljómar þá sinnir lögreglan hér sjálf innra eftirliti og er það starf í höndum lögreglustjóra hvers umdæmis. M.ö.o. Lögreglan á íslandi rannsakar sig þannig í raun sjálf.
Ef það á að veita þessar forvirku heimildir þá á almenningur að krefjast þess að á sama tíma verði tekið upp virkt óháð innra eftirlit. Verði það ekki gert þá mun almenningur sem því miður virðist upp til hópa hvorki treysta né bera virðingu fyrir lögreglunni alltaf eiga í hættu á að stuðst verði við óskrifuðu reglubókina LMA.
Við lifum á umbreytingartímum þar sem almenningur hefur ekki efni á að lögreglan sé notuð sem "geðþóttavopn" valdastéttarinnar eins og dæmin sýna í svo mörgum löndum. Við skulum bara vona að fyrsta "velferðar vinstristjórn" Íslands hagi sér í samræmi við landslög...
Rannsóknarheimildir lögreglu verði auknar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gjaldeyrisflétta Lýsingar
Miðvikudagur, 23. febrúar 2011
Hefur einhver heyrt um "gjaldeyrisfléttu" Lýsingar sem felst í því að skuldbreyta lánum sem voru í íslenskum krónum úr erlendri mynt í íslenskar krónur? Þ.e.a.s. að láta það líta þannig út á pappírum að lánið hafi verið í erlendri mynt þegar það var í raun í íslenskum krónum. M.ö.o. Lán er tekið í íslenskum krónum og þegar lántakandi skuldbreytir vegna vanskila þá kemur það fram á pappírum að verið sé að færa lán úr erlendri mynt íslenskar krónur en ekki úr íslenskum krónum í íslenskar krónur.
Maður spyr sig, er þetta eðlilegur gjörningur eða er þarna verið að fara á bakvið lögin?
Stjórnvöld beiti sér gegn fjármögnunarfyrirtækjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þakka þér herra forseti
Sunnudagur, 20. febrúar 2011
Forsetinn staðfestir ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skilgreining Valds
Miðvikudagur, 16. febrúar 2011
"Margir Íslendingar telji erlendar stórþjóðir hafa valtað yfir sig"
Í alþjóða stjórnmálum skilgreinum við vald sem getuna til þess að fá aðra til þess að gera það sem þeir myndu annars ekki gera. Íslenska ríkistjórnin er vegna vanhæfni sinnar að fylgja og láta undan skipunum, kúgunum og hótunum erlends valdríkis á kostnað Íslensku þjóðarinnar. Skömm þeirra sem samþykja þennan nauðarsamning verður langlíf rétt eins og afleiðingar Icesave dómsins sem verið er að reyna hlekkja við Íslenska þjóð.
Guardian fjallar um kjosum.is | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er verið að selja eignir skattborgara á vildarkjörum til útvalda?
Laugardagur, 29. janúar 2011
SF1 eru sjálfstæður sjóður í eigu rekstrarfélags sem starfar í skjóli Arion banka sem starfar í skjóli nafnleyndar. Seðlabankastjóri Samfylkingarinnar segist bundinn þagnarskyldu, þetta er gagnsæið sem sviknum kjósendum var lofað.
Er þarna verið að selja eignir skattborgara á vildarkjörum til útvalda? Almenningur á heimtingu á að fá að vita kaupverðið og hverjir kjölfestu fjárfestarnir í SF1 eru. Var það ekki bankaleynd og leynimakk sem varð til þess að ekkert eftirlit var haft með sjálfskipuðum smákóngum sem héldu að þeir gætu og mættu allt svo lengi sem það fattaðist ekki?
Maður getur þó vel skilið það af hverju öll þessi leynd er til staðar í "viðskiptum" á klakanum. Það væri nefnilega svo að ef fólkið í landinu gerði sér almennilega grein fyrir því hvað er að gerast á bak við tjöldin þá myndi líklega skapast hér stríðsástand sem myndi leiða til byltingar.
Getur það nokkuð hugsast að þeir sem komu landinu um koll séu nú í skjóli leyndar að kaupa Ísland á útsölu? Maður spyr sig...
Sagðist bundinn þagnarskyldu um söluferli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Skammtímasjónarmið sálfhverfra pólitíkusa
Föstudagur, 28. janúar 2011
Það er ekki hægt að skera endalaust niður í grunnstoðum samfélagsins án þess að það hrynji smám saman að innan. Á krepputímum á að styrkja stoðir menntunar og heilbrigðis en ekki skerða þær niður eins og krafa AGS kveður á um í áætlun sinni í því að leiða þjóðfélagið í átt að því að verða framleiðandi fremur en hugsandi samfélag.
Nauðsynlegt er að endurskipuleggja þjónustuna og í sumum tilfellum endurhanna kerfið frá grunni til þess að hægt sé að reka það á ódýrari og skilvirkari hátt án þess að skerða þjónustu til almennings sem borgar fyrir kerfið með sköttum sem virðast ætla að fara út fyrir öll velsæmismörk.
Með þekkingu og innsæi er allt hægt sé viljinn fyrir hendi, m.a. að endurhanna rótgróið kerfi. Niðurskurður í menntamálum er aðeins merki um vanhæfni, þröngsýni og vanhugsaðan ásetning stjórnvalda til þess að fara auðveldu leiðina en ekki réttu leiðina. Vanhæfir pólitíkusar virðast aðeins sjá svart og hvítt þar sem þeir virðast upp til hópa ófærir um að hugsa út fyrir kassann vegna veru sinnar inn í sjálfsköpuðum og sjálfhverfum sápukúluheim sem snýst um eigin skammtímasjónarmið sem en ekki framtíðarhagsmuni heildarinnar.
Framlög skert um milljarð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú hlýtur einhver að þurfa segja af sér
Þriðjudagur, 25. janúar 2011
Fólk sem hugsar ekki á það til að gera einfalda hluti gríðarlega flókna. Flumbrugangur ríkistjórnarinnar sýnir í verki þessu eins og öðrum að hún virðist langt frá því að vera starfi sínu fallinn. Þessum útskurð ber að fagna þar sem þetta stjórnlagaþing var að líkindum í grunnin lagt upp til þess að breyta stjórnaskránni svo Samfylkingin gæti framselt okkur til Brussel án þess að það kallaðist samkvæmt lögum, landráð.
Stjórnlagaþingskosning ógild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ríkistjórnin leggur þjóðina að veði.
Fimmtudagur, 13. janúar 2011
Allir góðir samningamenn vita að fyrsta tilboð á alltaf að vera allavega helmingi hærra en það sem maður sættir sig við. Gagntilboðið hefur því verið mjög ásættanlegt fyrir þá. Að bjóða 13,5% vexti sýnir það að þessir ruddar ætli að reyna koma utan um ríkisjóð skuldahlekkjum í marga áratugi.
Það er eins gott að ríkistjórnin hleypi málinu í þjóðaratkvæði. Hún hefur nefnilega ekki vald til þess að veðja eins stórt og samningarnir kveða á um með framtíð Íslensku þjóðarinnar.
Hvet alla til þess að kynna sér samningana
Lee Buchheit: Icesave samningar og samningaferlið
Buðu 13,5% Icesave-vexti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hlífir ríkistjórninn sökudólgum hrunsins?
Laugardagur, 11. desember 2010
Held að það séu allir sammála um að þetta fyrirtæki hefur brugðist faglegum skyldum sínum. Allt virðist benda til þess að það hafi leikið með í þessum glæpum sem áttu sér stað á árunum fyrir hrun.
Auðvitað á að höfða mál. Myndi segja að ef það væri ekki gert, þá væri ríkistjórnin að sýna fram á vilja sinn til þess að hlífa sökudólgum hrunsins. Nægt langlundargeð hefur hún nú sýnt hringrásarvíkingunum...
Hvernig væri nú að fara Hlusta á hana Lilju, hún spilar sinn leik út frá rökréttum pól. Hún talar fyrir fólkið en ekki bankana.
Vilja að ríkið höfði mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Að vera hafinn yfir lögin
Föstudagur, 10. desember 2010
Menn vildu fá að vita á hvaða lagagrundvelli ákvörðun um lokun var tekin en þau gátu ekki svarað því, sögðu ákvörðunina hafa verið tekna af erlendum aðilum,"
Það er svolítið ógnvænlegt að hugsa til þess hversu mikið af ákvörðunum eru teknar einhliða í þessum heim af aðilum sem telja sig hafna yfir lög.
Gróf aðför að tjáningarfrelsinu" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)