Náið samband Jóns og Mammons
Laugardagur, 10. júlí 2010
Þar sem á aflandseyjum á hann eyri engan, þá hlýtur hann Jón okkar að eiga náið samband við Mammon. Hann virðist bara geta biðlað til peningahimna og dregið svo milljarða upp úr hattinum hvenær sem honum hentar.
Að þessu sinni til þess að greiða til baka eitthvað af því sem hann hnuplaði úr sjóðum Glitnis.
Hvað tók hann aftur mikið?
Er þetta kannski bara innborgun?
Greiddi þrotabúinu 15 milljónir dollara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Stutt er síðan hann tók lán hjá sjálfum sér upp á litlar 440 milljónir með veði í sjálfu sér, því er hann hrokagikkur og ekkert annað sem verður að ná niður á jörðina hvað sem það kostar
Sigurður Haraldsson, 10.7.2010 kl. 08:58
Við getum byrjað á að hætta að fóðra kvekindeð og mótmælt með fótunum, þ.e.a.s. labbað framhjá Bónus.
Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 10.7.2010 kl. 09:34
Eineggja tvíburar eru sagðir nánir - ég held að Jón sé hálfeggja tvíburi sjálfs síns. Í öllu falli óheyrilega sjálfhverfur.
Ólafur Ingi Hrólfsson, 11.7.2010 kl. 08:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.