Hlustum á þetta fólk
Fimmtudagur, 7. október 2010
Hér er um að ræða hóp af fólki sem hefur bæði hug og hjarta á réttum stað.
Þessu fólki er treystandi, það eitt er víst.
Guðmundur Ásgeirsson sem er í stjórn Samtaka fullveldissinna veit hvað hann syngur.
Ég spái að Samtök fullveldissinna verði hástökkvarar í næstu kosningum.
Vona að fólk kynni sér þeirra málstað áður en það gengur að kjörkassanum því við þurfum lífsnauðsynlega að fá fólk til valda sem hefur bæði hug og harta á réttum stað.
Við skulum bara vona að núverandi ríkistjórn sem gjörsamlega er rúinn trausti virði lýðræðislegt kall Íslensku þjóðarinnar og boði til kosninga fyrr en seinna.
Vilja vaxtalausa peningaútgáfu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Öfugt við marga þá er stefna þeirra er allavega skýr hvað varðar ESB
Þór Magnússon (IP-tala skráð) 7.10.2010 kl. 18:35
Þakka jákvæð viðbrögð. Við renndum algjörlega blint í sjóinn með það hverjar undirtektirnar yrðu, en satt að segja hefur það komið okkur mjög skemmtilega á óvart hversu mikil vakning virðist vera að eiga sér stað um grundvallargerð peningakerfisins, galla þess og mögulegar úrbætur.
Guðmundur Ásgeirsson, 8.10.2010 kl. 18:52
Þið eigið hrós skilið fyrir eljusemi í þágu samfélagsins. Haldið þessu áfram, þið munuð uppskera það sem þið sáið...
Hecademus, 9.10.2010 kl. 20:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.