Þingmaður í broddi fylkingar

Gaman er að sjá hana Birgittu í broddi fylkingar, sú kona gengur hreint til verks og setur sig ekki ofar neinum öðrum. Þrátt fyrir að sitja á hinu háa Alþingi Íslendinga.   

Verð nú samt að segja að 400 manns teljast nú varla stór hópur mótmælenda miðað við það að Seðlabanki og FME hafi gefið út stríðsyfirlýsingu á fólkið í landinu svo ég vitni í Bubba Morthens

Allt fór fram friðsamlega í þetta sinn. 

Líklega hafa þessi mótmæli þó ekki opnað eyru nokkurs manns sem einhverju í þessu landi ræður.

Seðlabankanum var læst, keyrt var á hurðina á mótorfák auk þess sem ein kona fór upp á slysó eftir vettlingatök lögreglu.

 birgittavika.jpg

Bubbi segir byltingu framundan.

Eru þessi mótmæli aðeins byrjunin?

Mun fólk rísa upp þegar líður á Október? 

 

 


mbl.is Mótmælendurnir farnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Helgason

nei aldrei á íslandi.............værukærir aumingjar allir með tölu :(

nei ennars ekki þessi 401

Sigurður Helgason, 5.7.2010 kl. 14:55

2 identicon

Langar fólki í dálítið blóðbað til að breyta til? Hvað meinarðu svo, Siggi! Manstu ekki eftir Búsáhaldabyltingunni og drauminum um "Nýja Ísland"? :P

Reyndar er Nýja Ísland nú þegar til, þ.e.a.s. í Manitoba.

Brynjar Björnsson (IP-tala skráð) 5.7.2010 kl. 15:40

3 Smámynd: Sigurður Helgason

Hvað meinar siggi ....... þið fóruð á kjörstað og gáfuð þessum ösnum umboð ykkar

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU hahahahahahahahah

heims þjóð íslendingar,

Sé sömu asnarnir  ganga inn í bankana með það litla sem þeir eiga eftir , girða niðrum sig og spyrja geturðu geymt þetta fyrir mig,  

Og fólkið sem vinnur þar fyrir mafíuósana og eru í frontinum á handrukkunar dæminu segja það er ekki við mig að sakast, 

OG varðhundar nappa segjast alveg sofa á nóttum, þó þeir handleggsbrjóti einn og einn, og eru svo hissa á að það sé gert grín að þeim þegar þeir mótmæla lágum launum, jég á ekki orð hvað íslendingar eru heimsk þjóð  

Sigurður Helgason, 5.7.2010 kl. 16:18

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta er bananlýðveldi, því miður. Eða öllu heldur álbræðslunýlenda.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.7.2010 kl. 02:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband