Ef ég skyldi ráða mér skipstjóra
Föstudagur, 15. október 2010
Ef ég skyldi ráða mér skipstjóra til þess að sigla með mig og stórfjölskylduna Suður á bóginn, en skipstjórinn er sífellt við það að sigla fallegu snekkjunni minni í strand. Hann fer inn á slóðir sjóræningja og reynir í sífellu að snúa við og sigla til Evrópu því hann langar svo mikið að hitta vini sína í sértrúarsöfnuðinum sínum.
Ef þetta væri raunin þá myndi ég henda honum út í næstu höfn og ráða mér nýjan skipstjóra.
Ef einungis 9% af þjóðinni treystir ríkistjórninni til þess að stýra þjóðarskútunni þá á hún að ráða sér nýja stjórn. Ef skipstjórinn neitar að fara af brúnni þá er aðeins eitt í stöðunni.
Hvað gera skipverjar sem treysta ekki lengur skipstjóra sínum?
Einungis 9% bera mikið traust til Alþingis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.