Skipulag er grunvöllur velgengni
Laugardagur, 10. júlí 2010
Hún Klara Lind á hrós skilið fyrir þvílíkan metnað og áhuga sem hún virðist sýna.
Þegar nám og árangur í lífinu er annarsvegar þá skiptir skipulag sköpum.
Manneskja sem temur sér skipulag á unga aldri eru allir vegir færir í lífinu.
Sumir eru það heppnir að læra þetta snemma oftast frá foreldrum sínum.
Alveg er það þó fáránlegt að ekki sé lögð áhersla á að kenna börnum skipulag í skólakerfinu.
![]() |
Sextán ára stúdent stefnir í jarðfræði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Njósnir
Föstudagur, 9. júlí 2010
Það er alveg magnað að sjá hversu mikið lönd og stórfyrirtæki stunda njósnir nú til dags.
Sumir kalla það upplýsingaöflun á meðan aðrir telja það forvitni.
Það er líklega ágætt að þetta mál sé klárað með þessum hætti, þeir vita upp á sig sökina og fara eflaust með meiri aðgát þegar þeir senda næstu tylft njósnara í umferð.
Þessi skipti koma þó ágætlega út fyrir Rússa þar sem skiptin hljóma upp á 1 á móti 2,5...
Þar sem njósnir virðast njóta þvílíka vinsælda í dag þá verður manni að spurn.
Ætli Íslenska ríkið stundi njósnir?
Nei varla á litla saklausa Íslandi
![]() |
Njósnaraskipti í Vínarborg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Magni og Móði
Föstudagur, 9. júlí 2010
Nú er það stóra spurning, eru Magni og Móði hættir?
Held ekki.
Fyrir þá sem ekki vita, þá hafa gígarnir tveir hlotið nafnbótina Magni sem er sá stærri og Móði sem er sá minni.
Magni og Móði eru synir Þórs...
![]() |
Gufumökkur frá Eyjafjallajökli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að halda í fenginn
Föstudagur, 9. júlí 2010
Auðvitað gefur Jón ekki upp allar sínar eignir.
Væri það ekki uppgjöf að telja fram allt góssið sem tókst að stinga undan þegar á ráninu stóð?
Þeir sem hafa engu að tapa, gefast sjaldnast upp.
Hann er búinn að tapa mannorðinu og nú á hann bara peninga eftir...
![]() |
Kyrrsetningu ekki hnekkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Var Jón ekki með fjarstýringuna af Lárusi?
Föstudagur, 9. júlí 2010
Nei hann stýrði ekki Glitni, svona tæknilega séð.
En svo virðist vera sem hann hafi haldið á fjarstýringunni af þeim sem stýrði bankanum.
Það nægir kannski til þess að varpa frá sér sök.
Annars er mottóið hjá þessum mönnum að neita ávallt öllu og krefjast sannana.
Hversu oft ætli höfuðpaurar hafi náð að þverra sig ábyrgð í gegnum undirsáta sína?
http://www.vb.is/frett/1/59819/
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2010/04/08/larus_fekk_bein_fyrirmaeli_fra_joni_asgeiri/
http://www.visir.is/larus-sagdur-leppur-jons-asgeirs-i-glitni/article/2010592836598
![]() |
Ég stýrði ekki Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Af hverju öll þessi einokun og samráð á Íslandi?
Föstudagur, 9. júlí 2010

Hefur einhver pælt í því hver rótin sé af öllum þessum samkeppnisbrotum?
Er þetta ekki bara slakt eftirlit og fyrirtækin fara því eins langt og þau komast?
Væri það ekki almannahagur að tvíefla samkeppniseftirlitið?
Það getur varla liðist til lengdar að einokun og samráð sé bara svona "normið" á Íslandi eins og verið hefur.
Er ekki málið að "bannararnir" á þingi hækki viðurlöginn við þesskyns brotum?
![]() |
Þarf lög um hópmálsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Framtíð heilbrigðisþjónustu á Íslandi
Föstudagur, 9. júlí 2010


![]() |
Hönnun Landspítala kynnt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hann hefur kjark til þess að segja hlutina eins og þeir eru
Miðvikudagur, 7. júlí 2010
Nigel Farage er maður sem segir það sem aðrir þegja um.
Hann hefur kjark til þess að segja hlutina eins og þeir eru.
Það er alveg einstaklega gaman að hlusta á þennan færa ræðumann.
Þessi maður ver lýðræðið en ekki það bananalýðræði sem viðgengst í ESB
![]() |
Ekki ganga í ESB! |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Er Evrópa fórnanna virði?
Miðvikudagur, 7. júlí 2010

Það er fásinna að krefjast þess að Íslendingar hætti hvalveiðum.
Við þyrftum að fórna allt of mörgu til þess að veðja á það hvort grasið sé grænna inn í Evrópuveldinu.
Því verður ekki neitað að margt sem Evrópa býður er Íslandi í hag. En fólk verður að spyrja sig hvort það vegi upp á móti þeim fjölmörgu göllum sem fylgja þessu apparati.
Er það fórnanna virði?
Sé litið til framtíðar stöndum við mun sterkari sem eining út á ballarhafi heldur en sem hluti af sameinaðri Evrópu. Við höfum í raun allt til alls. Evrópa þarfnast okkar mun meira heldur en við þörfnumst hennar.
Held að það sé skýr vilji meirihluta Íslensku þjóðarinnar að þessi umsókn verði dreginn til baka.
![]() |
Ísland hætti hvalveiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú léttir á mörgum, í bili.
Miðvikudagur, 7. júlí 2010
Þetta eru góðar fréttir fyrir marga Íslenska skuldara.
Þetta eru þó varla aðgerðir sem bankarnir fara út í með bros á vör.
Maður spyr sig samt, hefðu þeir hugsanlega átt að gera betur?
Er ekki fullt af fólki sem á inni hjá þeim mikið fé ef við miðum við dóm Hæstaréttar?
Við eigum kannski bara að vera þakklát fyrir þessa eftirgjöf, veit ekki.
En ef ég væri með gengistryggt íbúðarlán, myndi ég allavega anda léttar.
Í bili...
Nú getur margur íslenskur skuldaþræll þakkað fyrir að lengt hafi verið í ólinni
![]() |
Bankar fara að tilmælum Samtaka fjármálafyrirtækja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)